04.08.19 - 17:35
Ívan Guðjón Baldursson
Ashley Young er nýr fyrirliði Man Utd (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær er búinn að staðfesta að Ashley Young verður fyrirliði Manchester United á tímabilinu. Hann tekur við bandinu af Antonio Valencia sem yfirgaf Rauðu djöflana á frjálsri sölu í sumar til að spila fyrir LDU Quito í heimalandinu.
Ólíklegt er að Young verði með fast sæti í byrjunarliði Rauðu djöflanna og er David De Gea meðal varafyrirliða. Spænski markvörðurinn mun líklega bera bandið oftar en Young yfir deildartímabilið.
„David gerir augljóslega tilkall en þegar Ash er á vellinum þá fær hann bandið," sagði Solskjær.
Young hefur verið hjá Man Utd í átta ár og er með 18 mörk í 42 stoðsendingar í 243 leikjum.
„David gerir augljóslega tilkall en þegar Ash er á vellinum þá fær hann bandið," sagði Solskjær.
Young hefur verið hjá Man Utd í átta ár og er með 18 mörk í 42 stoðsendingar í 243 leikjum.
