04.08.19 - 11:17
Ívan Guðjón Baldursson
Junior Firpo til Barcelona (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Barcelona er búið að staðfesta komu vinstri bakvarðarins Junior Firpo til félagsins frá Real Betis.
Firpo er fæddur 1996 og kemur frá Real Betis fyrir 25 milljónir evra. Hann var með 50 milljón evra söluákvæði í samningnum en samkvæmt spænsku fjölmiðlum var Betis að gera Barcelona greiða með afslættinum.
Firpo er fæddur í Dóminíska lýðveldinu og á fjóra leiki að baki fyrir U21 landslið Spánar. Hann var lykilmaður í liði Betis á síðustu leiktíð.
Firpo er nokkuð fjölhæfur og getur einnig leikið á vinstri kanti og sem miðvörður. Hann er öflugur varnarlega en á enn eftir að bæta sóknarleikinn sinn. Barcelona er því fullkomið skref fyrir bakvörðinn sem mun berjast við Jordi Alba um byrjunarliðssæti.

👋 ¡Bienvenido @JuniorFirpo03!
— FC Barcelona (@FCBarcelona_es) August 4, 2019
🔵🔴 #ReadyToColor pic.twitter.com/14EcSDhBEh