04.08.19 - 10:38
Ívan Guðjón Baldursson
Kean er leikmaður Everton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Everton er búið að staðfesta félagaskipti Moise Kean til félagsins frá Juventus.
Kean er talinn vera meðal efnilegustu sóknarmanna Evrópu um þessar mundir og hefur gert 7 mörk í 16 deildarleikjum fyrir Juventus þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára og koma yfirleitt inn af bekknum.
Everton borgar í heildina 30 milljónir evra til Juventus en ekki er tekið fram hversu mikinn pening umboðsmaðurinn Mino Raiola fær í sinn hlut, eða hversu háa upphæð Kean fær við undirskriftina.
Kean skrifar undir fimm ára samning og er fimmti leikmaðurinn sem gengur í raðir Everton í sumar, eftir komu Andre Gomes, Fabian Delph, Jean-Philippe Gbamin og Jonas Lössl.
Kean hefur skorað tvisvar í þremur A-landsleikjum og greinir Sky frá því að Juventus hafi ekki sett neitt kaupákvæði í kaupsamninginn.

🇮🇹 | The Italian: Job done! ✅ pic.twitter.com/cTag5mL9yC
— Everton (@Everton) August 4, 2019
Moise Kean had the best minutes-per-goal ratio of any player during the 2018-19 Serie A season:
— Squawka Football (@Squawka) August 4, 2019
• 536 minutes
• 6 goals scored
• 2 match-winners
Everton will be hoping for one every 89 minutes as well. 🔥 pic.twitter.com/O1qdwSbUA8