Fotbolti.net
04.08.19 - 13:55
Ívan Guðjón Baldursson

Man City lánar Nmecha til Wolfsburg (Staðfest)

Nmecha í leik gegn sínum fyrrum liðsfélögum í enska U21 landsliðinu.

Nmecha í leik gegn sínum fyrrum liðsfélögum í enska U21 landsliðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Wolfsburg er búið að staðfesta komu framherjans unga Lukas Nmecha sem kemur á lánssamningi frá Manchester City.
Nmecha er 20 ára gamall og gildir lánssamningurinn út tímabilið. Hann hefur komið við sögu í þremur leikjum með aðalliði Man City.

Hann gerði 3 mörk í 41 leik að láni hjá Preston á síðustu leiktíð og býr yfir mikilli reynslu með yngri landsliðum Englands.

Hann er fæddur í Hamborg og er með tvöfaldan ríkisborgararétt. Hann á 31 leik að baki fyrir yngri landslið Englands og 4 leiki fyrir U21 lið Þýskalands.

Wolfsburg endaði í 6. sæti deildarinnar í vor og því getur Nmecha fengið dýrmæta reynslu úr riðlakeppni Evrópudeildarinnar í haust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.