Fotbolti.net
04.08.19 - 11:35
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Milan fær Bennacer (Staðfest) - Arsenal gat stolið honum

Milan fær Bennacer (Staðfest) - Arsenal gat stolið honum
Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan er búið að krækja í Ismael Bennacer fyrir 16 milljónir evra. Hann kemur úr röðum Empoli og var Arsenal með forkaupsrétt á honum.
Enska félagið ákvað þó að nýta ekki þann rétt og leyfa Milan að kaupa miðjumanninn efnilega.

Bennacer verður 22 ára í desember og hefur spilað 17 A-landsleiki fyrir Alsír. Hann er þó fæddur í Frakklandi og lék 11 leiki fyrir U18 og U19 lið Frakklands áður en hann fékk kallið hjá Alsír.

Bennacer hefur verið lykilmaður í liði Empoli síðustu tvö ár og er annar leikmaður liðsins sem skiptir yfir til AC Milan eftir að félagið féll niður í Serie B.

Milan fékk einnig Rade Krunic frá Empoli og var þegar búið að fá Theo Hernandez frá Real Madrid og Rafael Leao frá Lille fyrr í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.