Fotbolti.net
04.08.19 - 22:41
Brynjar Ingi Erluson

Simon Mignolet til Club Brugge (Staðfest)

Simon Mignolet er mættur til Belgíu

Simon Mignolet er mættur til Belgíu

Canon

Mynd: Twitter

Belgíska félagið Club Brugge staðfesti í kvöld komu Simon Mignolet frá Liverpool. Hann skrifar undir fimm ára samning við félagið.
Mignolet er 31 árs gamall en hann eyddi sex árum hjá Liverpool þar sem hann lék 204 leiki.

Í kvöld bárust fréttir af því að hann væri á leið aftur til Belgíu og að hann myndi gangast undir læknisskoðun á morgun en Club Brugge ákvað að staðfesta fregnirnar í kvöld.

Hann skrifar undir fimm ára samning við Club Brugge en hann gerir fimm ára samning við félagið.

Kaupverðið er 6 milljónir punda en Liverpool leitar nú að arftaka hans. Alex McCarthy og Adrian hafa verið orðaðir við félagið en stuðningsmenn Liverpool vilja fá spænska markvörðinn Pepe Reina aftur til félagsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.