04.08.19 - 12:20
Ívan Guðjón Baldursson
Sörloth lánaður til Trabzonspor (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Norski sóknarmaðurinn Alexander Sörloth mun leika fyrir tyrkneska félagið Trabzonspor að láni út tímabilið.
Sörloth er samningsbundinn Crystal Palace til 2022 en ekkert pláss er fyrir hann í liðinu. Hann er 23 ára og gekk í raðir Palace fyrir 9 milljónir punda í janúar 2018.
Hann hefur alltaf átt erfitt uppdráttar hjá félaginu og spilaði 16 úrvalsdeildarleiki án þess að skora mark. Eina mark hans fyrir félagið var sigurmarkið í 1-0 sigri gegn Swansea í deildabikarnum.
Hann gerði 4 mörk í 19 leikjum að láni hjá Gent í belgíska boltanum á síðustu leiktíð.