Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 04. ágúst 2020 14:08
Magnús Már Einarsson
Brandon Williams framlengir við Man Utd
Mynd: Getty Images
Vinstri bakvörðurinn Brandon Williams hefur skrifað undir nýjan samning við Manchester United.

Hinn 19 ára gamli Williams framlengdi fyrri samning sinn um eitt ár en hann er uppalinn hjá Manchester United.

Williams spilaði 33 leiki á nýliðnu tímabili með Manchester United og kom inn í liðið af krafti.

„Brandon átti stórkostlegt fyrsta tímabil og við erum ánægðir með að hann hafi skrifað undir nýjan samning," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United.

„Hann mun halda áfram að læra á hverjum degi og okkur hlakkar til að fylgjast með honum vaxa á næstu tímabilum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner