29.09.26 - 18:31
Brynjar Ingi Erluson
„Ég held að hann sé stressaður“

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kári Árnason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland mætir Lúxemborg í öðrum leik sínum í Þjóðadeildinni klukkan 18:45 í kvöld, en Kári Árnason ræddi stöðuna og mikilvægi leiksins fyrir flautað verður til leiks.

TENGT EFNI
Byrjunarlið Íslands: Arnar gerir tvær breytingar - Gylfi kemur inn
Ísland gerði 1-1 jafntefli við Eistland í fyrsta leiknum og voru það töluverð vonbrigði.
Arnar hefur fengið gagnrýni fyrir leikskipulagið og segir Kári alveg ljóst að hann finni fyrir pressunni.
„Ég held að hann sé stressaður. Hann verður að vinna þetta, svo einfalt er það.“
„Þetta er töluvert betra lið en við vorum að mæta en þeir gefa líka meiri færi á sig með því að vera framar á vellinum. Það hentar Arnari ekkert sérlega vel eða þessu skipulagi að spila á móti fimm manna vörn. Það hefur sýnt sig áður, ekki bara með íslenska landsliðinu, heldur annars staðar líka. Þeir eru ekki að fara gera það og þeir hugsa að þeir eigi að vinna þetta, en við þurfum að vinna þetta,“ sagði Kári á SÝN.
„Einn sigur í síðustu ellefu leikjum. Eru menn farnir að finna fyrir því?“ spurði Kjartan Atli Kjartansson í settinu og svaraði Kári því.
„Já ég efast ekki um það. Ég held að allir og sérstaklega þjálfarateymið þurfi að ná betri árangri og ég held að það sem Arnar er að reka sig á er að leikskipulagið er ekki að skila stigum í hús. Er þetta of flókið?“
„Þetta eru spurningar sem við spurðum þegar hann var að taka við. Er of lítill til að koma þessu fyrir í landsliðsfótbolta? Því að sem varnarmaður spilandi undir honum og allir vissu hvað þeir voru að gera þá var maður öruggur á því, en það voru allir með sín hlutverk á kristaltæru eftir nokkur ár í bígerð. Er þetta nógu skammur tími til að koma þessu á koppinn og erum við með réttu leikmennina í þetta? Við höfum ekki verið að spila með djúpan miðjumann og vörnin er hripleg og svo tvo sóknartengiliði á miðjunni,“ sagði Kári enn fremur.
Aron Elís Þrándarson, leikmaður Víkinga, var með Kára í settinu og segir leikskipulag Lúxemborgar henta Íslandi ágætlega fyrir leikinn í kvöld.
„Já ég held að það hjálpi okkur að þeir eru í fjögurra manna varnarlínu og á heimavelli þannig þeir sækja meira en Eistland gerir og það hentar Orra betur að geta stungið sér inn fyrir og fengið það „element“ í okkar leik,“ sagði Aron Elís.