29.09.26 - 18:45
Brynjar Ingi Erluson
„Man City verður að þjást“

Mynd: EPA

David Bernstein, fyrrum stjórnarformaður Man City

Mynd: EPA

Mynd: EPA
David Bernstein, fyrrum stjórnarformaður Manchester City, segir að það eigi að fella félagið niður um deild ef það tapar áfrýjun sinni í málinu gegn ensku úrvalsdeildinni vegna alvarlegra brota á fjárhagsreglum deildarinnar.

TENGT EFNI
Framkvæmdastjórinn óþægilegur: Ég hef ekkert að segja
Bernstein hefur stutt Man City frá árinu 1954 og kom inn í stjórn félagsins árið 1994.
Hann varð síðar stjórnarformaður og gegndi því starfi þar til hann hætti árið 2004. Margir stuðningsmenn félagsins eru honum þakklátir fyrir störf hans og telja hann hafa átt stóran þátt í því að koma félaginu aftur á réttan kjöl eftir erfiðan tíma.
Fyrrum stjórnarformaðurinn ræddi við BBC um niðurstöður dagsins þar sem Man City var dæmt sekt í öllum 115 ákæruliðum sem snúa að brotum á fjárhagsreglum.
„Þetta er svo ótrúlega sláandi. Mínar fyrstu hugsanir eru þær hvort stjórnin eigi að halda áfram? Á fólk sem tengist þessu máli að fara strax í bann?“ sagði hann.
„Þetta er mjög alvarlegt og í raun algerlega skelfilegt. Það er ákveðin hugsun hjá lögfræðingum sem er matað í þá að neita, neita og neita, en þetta er fótboltafélag sem er hluti af deild og orðspor hennar er undir. Ég myndi ganga svo langt að segja að þetta sé rótgróið svindl og ef það er staðan, og ég er nú enginn lögfræðingur en pælið aðeins í því að þetta er svo alvarlegt að þetta fer langt fram yfir fótboltayfirvöld,“ sagði Bernstein.
Hann telur að réttast væri að dæma Man City niður um deild ef áfrýjunin tapast.
„Refsingarnar mega ekki bara vera fjárhagslegar, þær verða að ná töluvert lengra en það. Ef áfrýjunin tapast þá getur Man City ekki verið áfram í deildinni. Þeir verða að þjást og ég segi þetta sem stuðningsmaður félagsins,“ sagði Bernstein.