Fotbolti.net
29.09.26 - 15:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Það verði meiri flótti þaðan en úr Val"

Víkingur er í mikilli fallhættu.

Víkingur er í mikilli fallhættu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Valur og Víkingur eru í fallsætum í Bestu deild kvenna þegar ein umferð er eftir í neðri hlutanum.

Í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann, var rætt um möguleikann á því að þessi lið falli, hvað muni gerast.
„Ég átta mig eiginlega engan veginn á því hvað gerist," sagði Hörður Bjarnar Hallmarsson, þjálfari Hauka, um stöðuna hjá Val ef liðið fellur. „Ég held að það sé partur af þessum hópi sem eru miklir Valsarar og vilja vera byrjunarliðsleikmenn í Val. En ég átta mig ekki á því hvernig það yrði."

„Það voru uppaldir Valsarar að skrifa undir samning fyrir ekki svo löngu. Það er kannski staðfesting á því að þær ná að halda einhverjum kjarna sem þær verða að gera því það er ekki auðvelt að komast upp úr Lengjudeildinni heldur," sagði Arnar Páll Garðarsson.

„Ég er líka með einhverja tilfinningu fyrir því að hlutirnir muni falla á ótrúlegan hátt í lokaumferðinni. Að sama skapi erum við að gleyma að ræða hitt liðið sem þær voru að keppa á móti."

„Víkingur er ekki í frábærri stöðu og ég horfi meira á ef Víkingur fellur að það verði miklu meiri flótti þaðan en úr Val. Bara út frá prófílum sem eru þar og leikmönnum sem eru þar. Það eru leikmenn þarna sem hafa spilað erlendis. Telma Ívars, Jasmín, Þórdís Hrönn, Bergdís ætlar væntanlega að komast út og Bergþóra var úti. Áslaug Dóra var líka úti. Ég sé meira fyrir mér að það verði alvöru uppstokkun hjá Víkingi ef þær falla," sagði Arnar Páll jafnframt.

Þór/KA getur líka fallið í lokaumferðinni en það verður gríðarlega áhugavert að sjá hvað gerist. Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan.
Valur hefur átt ekki gott tímabil.

Valur hefur átt ekki gott tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.