29.09.26
Krísa í íslenskum fótbolta - Miðverðir framtíðarinnar
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Það er miðvarðakrísa í íslenskum fótbolta. Í síðasta landsleik gegn Eistlandi var Stefán Teitur Þórðarson, miðjumaður að upplagi, fenginn til að leysa stöðuna. Stefán Teitur hefur aðeins einu sinni á ferlinum spilað sem miðvörður með félagsliði, í sex mínútur með Silkeborg árið 2022.
Á sama tíma er nýtt miðvarðapar að myndast hjá U21-landsliðinu. Davíð Helgi Aronsson og Júlíus Mar Júlíusson eru báðir ungir og komnir út í atvinnumennsku. En eru þeir framtíðarlausnin? Og hverjir aðrir koma til greina? Hér er farið yfir miðverði 23 ára og yngri sem gætu orðið hluti af íslenska landsliðinu á komandi árum.