Fotbolti.net
29.09.26 - 19:02
Brynjar Ingi Erluson

Þjóðadeildin: Annað jafntefli hjá Færeyingum

Færeyingar eru með tvö stig eftir tvo leiki

Færeyingar eru með tvö stig eftir tvo leiki

Canon

Mynd: EPA

Færeyingar náðu í annað stig sitt í C-deild Þjóðadeildarinnar er þeir gerðu 1-1 jafntefli við Moldóvu í Chisinau.
Færeyingar gerðu einnig 1-1 jafntefli í fyrsta leiknum gegn Kasakstan, en í báðum leikjunum komust þeir í forystu.

Viljornur Davidsen skoraði úr vítaspyrnu á 26. mínútu í kvöld, en um miðjan síðari hálfleik jafnaði Sergiu Perciun og tryggði heimamönnum stig.

Færeyingar eru í 2. sæti C-riðils með tvö stig, einu stigi á eftir Slóvakíu sem er á toppnum, en Moldóva er á botninum með eitt stig.

Finnland gerði þá markalaust jafntefli við Hvíta-Rússland í Helsinki.

Færin fóru forgörðum hjá báðum liðum, en Finnar geta eflaust verið ágætlega sáttir með fjögur stig á toppi A-riðils C-deildar. Hvíta-Rússland er í 3. sæti með eitt stig.

Úrslit og markaskorarar:

Finnland 0 - 0 Hvíta-Rússland

Moldóva 1 - 1 Færeyjar
0-1 Viljornur Davidsen ('26 , víti)
1-1 Sergiu Perciun ('66 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.