Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 04. ágúst 2020 17:52
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Brentford og Fulham: Mitrovic á bekknum
Said Benrahma byrjar í kvöld
Said Benrahma byrjar í kvöld
Mynd: Getty Images
Brentford og Fulham spila hreinan úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni á Wembley klukkan 18:45 en byrjunliðin eru mætt í hús. Aleksandar Mitrovic er á bekknum hjá Fulham.

Það er þungt högg fyrir Fulham að geta ekki byrjað Mitrovic í dag en hann er með 26 mörk í 40 leikjum í ensku B-deildinni. Hann hefur verið að glíma við meiðsli í nára.

Said Benrahma er á sínum stað í liði Brentford en hann hefur verið orðaður við stærstu félögin í úrvalsdeildinni. Það er ljóst að ef Brentford fer ekki upp í kvöld þá mun hann skoða tilboð frá Arsenal og Chelsea.

Brentford: Raya, Henry, Pinnock, Norgaard, Jensen, Benrahma, Watkins, Dasilva, Jansson, Mbuemo, Dalsgaard.

Fulham: Rodak, Odoi, Hector, Ream, Bryan, Reed, Cairney, Onomah, Kebano, Decordova-Reid, Kamara.
Athugasemdir
banner
banner