Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 04. ágúst 2022 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spáin fyrir enska - 3. sæti - „Þessi leikmaður er latari en ég"
Tottenham
Kane og Son eru eitt besta dúó í sögu enska boltans.
Kane og Son eru eitt besta dúó í sögu enska boltans.
Mynd: Getty Images
Stjórinn, Antonio Conte.
Stjórinn, Antonio Conte.
Mynd: EPA
Richarlison var keyptur til Spurs í sumar.
Richarlison var keyptur til Spurs í sumar.
Mynd: Heimasíða Tottenham
Hörður Ágústsson er stuðningsmaður Spurs.
Hörður Ágústsson er stuðningsmaður Spurs.
Mynd: Úr einkasafni
Kaupin á Ndombele eru einhver þau slökustu í sögu Spurs.
Kaupin á Ndombele eru einhver þau slökustu í sögu Spurs.
Mynd: Getty Images
Hvað skorar Kane mörg mörk í deildinni í vetur?
Hvað skorar Kane mörg mörk í deildinni í vetur?
Mynd: EPA
Miðvörðurinn Cristian Romero er öflugur.
Miðvörðurinn Cristian Romero er öflugur.
Mynd: EPA
Perisic er kominn frá Inter.
Perisic er kominn frá Inter.
Mynd: Tottenham Hotspur
Tottenham er spáð þriðja sæti.
Tottenham er spáð þriðja sæti.
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildin, sem er í miklu uppáhaldi hjá flestum fótboltaunnendum á Íslandi, hefst um næstu helgi. Fyrsti leikur er á föstudaginn.

Líkt og síðustu ár, þá munum við kynna liðin í deildinni eftir því hvar þau enda í sérstakri spá fréttamanna Fótbolta.net. Við heyrum líka í stuðningsfólki hvers lið og tökum púlsinn fyrir tímabilið sem er framundan.

Í þriðja sæti í þessari spá er Tottenham.

Um Tottenham: Gengið var brösugt framan af á síðustu leiktíð. Tímabliið byrjaði ekki vel undir stjórn Nuno Espirito Santo og inn kom raðsigurvegarinnar Antonio Conte. Á ákveðnum tímapunktum leit það út fyrir að hann væri ekki að ná nægilega vel til liðsins en hann náði að stýra liðinu í fjórða sæti eftir góðan endasprett.

Conte hefur fengið að versla í sumar og það verður fróðlegt að sjá hvort honum takist að afreka eitthvað sem aðrir hafa ekki gert með Tottenham síðustu árin - að vinna titil.

Komnir:
Richarlison frá Everton - 50 milljónir punda
Yves Bissouma frá Brighton - 25 milljónir punda
Djed Spence frá Middlesbrough - 12,5 milljónir punda
Clement Lenglet frá Barcelona - á láni
Fraser Forster frá Southampton - frítt
Ivan Perisic frá Inter - frítt

Farnir:
Steven Bergwijn til Ajax - 26,5 milljónir punda
Cameron Carter-Vickers til Celtic - 6 milljónir punda
Jack Clarke til Sunderland - 1 milljón punda
Joe Rodon til Rennes - á láni
Troy Parrott til Preston - á láni
Pierluigi Gollini til Atalanta - var á láni

Lykilmenn: Cristian Romero, Harry Kane og Son Heung-min eru þrír mikilvægustu leikmenn Tottenham. Romero kom gríðarlega sterkur inn á síðustu leiktíð, en hann er argentínskur miðvörður sem kallar ekki allt ömmu sína. Kane og Son eru svo eitthvað besta sóknardúó sem sést hefur í enskum fótbolta; magnaðir báðir tveir. Það verður svo gaman að sjá hvernig leikmenn eins og Richarlison og Yves Bissouma munu smella inn í lið Spurs.




Hefur ekkert verið mjög auðvelt í rúm 30 ár
Hörður Ágústsson er mikill stuðningsmaður Tottenham eins og margir hér á landi. Hann svaraði nokkrum spurningum um Spurs og tímabilið sem er í vændum.

Ég byrjaði að halda með Tottenham af því að… Ég sá leik með Tottenham stuttu eftir að Paul Gascoigne kom til liðsins. Jebb, ég er það gamall. Það var ekki erfitt að heillast af þeim leikmanni enda sá besti sem England hefur alið. Á svipuðum tíma keypti pabbi minn handa mér Real Madrid búningasett með Butragueño aftan á og verandi ungur drengur á þessum tíma þá lagði ég saman 2 og 2 og fékk það út að ég ætti að halda með liðum í hvítum búningum. Öll fjölskyldan mín skiptist í að halda með Liverpool eða Manchester United. Það hefur ekkert verið mjög auðvelt í rúm 30 ár að halda með Tottenham í þessari fjölskyldu og hefur pabbi minn og bræður hans (Man U) verið duglegir að minna mig á það en það hefur minna heyrst í þeim síðustu árin.

Hvernig fannst þér síðasta tímabil og hvernig líst þér á tímabilið sem framundan er? Síðasta tímabil byrjaði náttúrulega á því að við sáum Tottenham undir stjórn sennilega þeim versta stjóra sem hefur verið við stjórnvölinn hjá mínu ástkæra liði. Að horfa á Tottenham undir stjórn Nuno var eins og að horfa á málningu þorna og sem betur fer ákvað hann að skipta Lucas Moura út af vellinum fyrir hollenska undrið Stephen Bergwijn og völlurinn gjörsamlega sturlaðist. 3-0 tap í þeim leik gegn Manchester United losaði okkur undan þeirri ánauð. Þakklátur fyrir þessa skiptingu í dag.

Tímabilið sjálft var svo alveg frábært í heildina, lægsti punkturinn hjá liðinu var auðvitað þegar Nuno var rekinn en að fá Antonio Conte inn var algjör vítamínsprauta. Endapunkturinn á tímabilinu var eins og handrit skrifað af sturluðum Tottenham aðdáanda. Það hefði engum dottið í hug að við myndum enda í 4. sæti í deildinni þegar Nuno var rekinn. Að minnsta kosti var mjög ánægjulegt að sjá meltdownið sem Arsenal aðdáendur fóru í eftir að liðið þeirra bottle-aði 4.sætinu.

Varðandi komandi tímabil þá býst ég við því að sjá liðið byrja á þeim stað sem það endaði 21/22 tímabilið. Allt neðar en 3 sætið með alvöru atlögu að titlinum + einhvern málm í skápinn væri failure að mínu mati.

Hefur þú farið út til Englands að sjá þitt lið spila? Ef svo er, hvernig var það? Hef farið nokkuð oft á White Hart Lane, tvisvar á Wembley og tvisvar á nýja leikvanginn að sjá Tottenham spila. Hef líka farið á Goodison Park að sjá Tottenham þar sem Jermaine Jenas skoraði sigurmarkið á 90 mínútu og tryggði okkur evrópubolta.

Ég var með miða á fyrsta Tottenham - Arsenal leikinn á nýja vellinum en veiran skæða sá til þess að ég missti af þeim leik en ég var á staðnum þegar Tottenham vann Arsenal í síðasta leik þessara liða á White Hart Lane. Hef hvorki fyrr né síðar upplifað aðra eins stemningu á fótboltaleik. Ótrúleg upplifun.

Þessi nýi völlur er svo eitthvað annað sem þarf 20 klukkutíma podcast til að lýsa. Mæli með því að kíkja þangað, það er einhver upplifunin.

Það er fátt sem jafnast á við að sitja á White Hart Lane (eða nýja vellinum) og fá gæsahúðina þegar allur völlurinn byrjar að syngja. Nema jú auðvitað Heimavöllur Hamingjunnar í Víkinni. Þar er gæsahúðin einu stigi fyrir ofan.

Uppáhalds leikmaðurinn í liðinu í dag? Það er ekki hægt að líta fram hjá Son eða Kane en minn uppáhalds er Cristian Romero. Það hefur vantað stál í hópinn, í bland við örlitla sturlun. Erik Lamela var svona love/hate leikmaður fyrir mig. Elskaði sturlunina en það vantaði upp á gæðin. Romero er fullkomin blanda af stáli, sturlun og gæðum. Það hefur vantað svona leikmann sem leikmenn og aðdáendur annarra liða hugsa 'djöfullinn, Romero er í byrjunarliðinu'. Svo á eftir að koma í ljós hvort gæðin séu nægilega mikil hjá Richarlison því guð veit að sturlunin og stálið er ekki af skornum skammti hjá honum.

Leikmaður sem þú myndir vilja losna við? Ég yrði mjög glaður ef ég þyrfti ekki að heyra nafnið Giovani Lo Celso aftur. Það er ekki til leikmaður Tottenham sem hefur farið meira í taugarnar á mér en þessi gæi. Að sjá „fail“ klippur af honum er svo sorglegt að það er næstum því fyndið. Að hann sé í argentínska landsliðinu þarf svo að rannsaka sérstaklega. En ég get ekki eingöngu nefnt Lo Celso til leiks. Kaupin á Tanguy � Ndombele eru þau verstu sem Tottenham hafa gert, ever. Það eru hæfileikar þarna - og nóg af þeim - en þessi leikmaður er latari en ég. Hann bókstaflega nennir ekki að vera atvinnumaður í fótbolta.

Fáið 2 fyrir 1 hér. Burt með Lo Celso og Ndombele. Strax.

Leikmaður í liðinu sem fólk á að fylgjast sérstaklega með í vetur? Kulusevski, Skipp, Bentancur og Perisic. Þessir fjórir verða virkilega mikilvægir fyrir okkur í vetur fyrir utan þá augljósu eins og Lloris, Kane, Son, Romero og svo framvegis. Kulu, Skipp, Bentancur og Perisic eru allir með svakaleg gæði og ef þeir haldast heilir í vetur þá verð ég ansi spenntur fyrir tímabilinu.

Ef ég mætti velja einn leikmann úr öðru liði í ensku úrvalsdeildinni myndi ég velja… Kevin De Bruyne. Hann er stórkostlegur leikmaður og að ég held mjög vanmetinn hjá aðdáendum annarra liða. Hann myndi gefa okkur þetta unlock sem okkur vantar stundum og mörk / stoðsendingar sem er bara toppað af Kane og Son. Myndi passa virkilega vel í þennan hóp.
Ertu ánægður með knattspyrnustjórann? Antonio Conte er ekkert að reyna að finna upp hjólið, hann vill bara hafa leikmenn sem eru tilbúnir að klára sig algjörlega inni á vellinum og að þeir séu því til viðbótar nægilega góðir til að vinna leiki. Viðurkenni að mér stóð ekki á sama stuttu eftir að hann var ráðinn. Liðið var ekki að spila sérstaklega vel og mér fannst stórfurðulegt að sjá leikmenn liðsins ekki bregðast hraðar við ráðningu hans en þeir gerðu. Antonio náði sem betur fer í gegn á endanum og þessir gæjar, sem eru vanir því að geta spilað hvernig sem er og verið í hóp í næsta leik, fóru á endanum að spila eins og liðsheild. Það er það sem Antonio kemur með að borðinu að mínu mati, svipuð stemning og hjá Pochettino og ég er hrikalega ánægður með hann sem stjóra. Myndi ekki skipta honum út fyrir neinn annan stjóra og vona að hann kroti undir langtíma samning sem allra fyrst.

Hvernig finnst þér leikmannaglugginn hafa verið? Fínn gluggi, eins og staðan er núna 7/10 en vandamálið er að það hafa verið ansi margir gluggar síðustu ár sem hafa verið 0/10 eða þar í kring. Liðið er miklu sterkara en í fyrra en það hafa líka önnur lið verið að styrkja sig mjög gáfulega og þar á meðal eru erkifjendurnir í Arsenal. Ég hef mjög gaman af því að sjá Jón Kára Eldon eða aðra Arsenal kónga tala upp liðið sitt í stemningu. Hef aldrei skilið hvers vegna maður ætti ekki að vera bjartsýnn á leið inn í tímabil og það mættu fleiri taka sér Arsenal aðdáendur hvað þetta varðar til fyrirmyndar. Auðvitað er partur af þessu grín en mér finnst þetta mjög skemmtileg nálgun á það að vera aðdáandi liðs. Vera með í stemningunni, jafnvel búa hana til áður en hún byrjar og svo muna að þrauka sér í gegnum erfiðu tímana því þetta verður allt í lagi. Þetta er bara fótbolti.

Í hvaða sæti mun Tottenham enda á tímabilinu? Ég held að Tottenham muni lenda í 3. sæti á tímabilinu og vinna einn bikar. Ég held að flestir Tottenham aðdáendur séu sammála að það væri flott skref áfram og svo ef herra Conte fær enn meiri stuðning frá nískupúkanum Daniel Levy þá gæti það jafnvel gerst að liðið myndi vinna sinn fyrsta deildartitil frá árinu 1961.

Til að vera með í stemningunni þá er ég líka tilbúinn að spá því að ef lykilmenn okkar haldast heilir og spila eins og þeir geta, að þá muni Tottenham gera atlögu að titlinum. En það snýst um stemninguna og hvort það séu nægilega margir leikmenn í þessum hóp sem trúa því að þetta sé ekki bara keppni á milli Man City og Liverpool. Ég er alveg tilbúinn að trúa á þá stemningu þar til hún er ekki lengur tölfræðilega möguleg!

#COYS




Hér fyrir neðan má svo sjá hvernig spá fréttafólks Fótbolta.net lítur út.

Þau sem spáðu: Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Aksentije Milisic, Arnar Laufdal Arnarsson, Brynjar Ingi Erluson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Ívan Guðjón Baldursson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni.
.

Spáin:
1.
2.
3. Tottenham, 175 stig
4. Manchester United, 164 stig
5. Arsenal, 163 stig
6. Chelsea, 160 stig
7. West Ham, 133 stig
8. Leicester, 123 stig
9. Newcastle, 115 stig
10. Aston Villa, 99 stig
11. Wolves, 96 stig
12. Brighton, 94 stig
13. Crystal Palace, 90 stig
14. Everton, 61 stig
15. Southampton, 55 stig
16. Leeds, 53 stig
17. Fulham, 43 stig
18. Brentford, 42 stig
19. Nottingham Forest, 35 stig
20. Bournemouth, 11 stig
Enski boltinn - Löngu kominn tími á málm hjá Tottenham
Athugasemdir
banner
banner
banner