Fotbolti.net
04.08.26 - 13:34
Elvar Geir Magnússon

Georgíumaður dæmir leik Víkings en Portúgali sér um VAR

Giorgi Kruashvili lyftir upp gula spjaldinu í Evrópudeildarleik Nice og Braga.

Giorgi Kruashvili lyftir upp gula spjaldinu í Evrópudeildarleik Nice og Braga.

Canon

Mynd: EPA

Á fimmtudagskvöld klukkan 18 verður fyrri leikur svissneska liðsins Thun og Íslandsmeistara Víkings í forkeppni Evrópudeildarinnar.

UEFA hefur opinberað dómarateymi leiksins en aðaldómari verður Georgíumaðurinn Giorgi Kruashvili. Allir aðrir í teyminu eru líka Georgíumenn, fyrir utan VAR dómarann sem heitir Tiago Martins og er portúgalskur.

Kruashvili býr yfir töluverðri reynslu, er 40 ára og dæmdi í deildarkeppni Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar á síðasta tímabili.
VAR á Valsvelli
Valur tekur á móti Nordsjælland í fyrri viðureign liðanna í forkeppni Sambandsdeildarinnar á fimmtudag. Þar kemur dómarateymið frá Ungverjalandi og aðaldómari verður Gergö Bogár.

Á þessu stigi keppninnar er byrjað að notast við VAR og mun Tamás Bognár vera VAR dómari.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.