Fotbolti.net
04.08.26 - 14:17
Elvar Geir Magnússon

Jörgensen fer á láni til Strasbourg

Jörgensen fer á láni til Strasbourg
Canon

Mynd: EPA

Markvörðurinn Filip Jörgensen verður lánaður frá Chelsea til Strasbourg út komandi tímabil.

Jörgensen, sem er 24 ára, bætist því við gífurlega langan lista leikmanna sem hafa skipt á milli Chelsea og Strasbourg síðan félögin hafa verið undir sama eignarhaldi.
Hugo Oliveira stjóri franska liðsins vildi fá markvörð sem er góður í löppunum eftir að Mike Penders snéri aftur til Chelsea eftir lánsdvöl.

Jörgensen samþykkti að fara til Strasbourg til að leita eftir meiri spiltíma. Robert Sanchez er aðalmarkvörður Chelsea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.