Fotbolti.net
04.08.26 - 12:51
Elvar Geir Magnússon

Mudryk spilar væntanlega með Chelsea á morgun

Mudryk spilar væntanlega með Chelsea á morgun
Canon

Mynd: EPA

Mykhailo Mudryk gæti spilað sinn fyrsta leik í 20 mánuði á morgun en hann er í leikmannahópi Chelsea sem mætir Juventus í æfingaleik í Hong Kong.

Úkraínski landsliðsmaðurinn var dæmdur í langt keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi en það var fellt úr gildi nýlega.
Mudryk: Ætlaði aldrei að svindla
TENGT EFNI

Mudryk: Ætlaði aldrei að svindla

„Já hann gæti spilað. Það er kannski of snemmt fyrir hann að spila 90 mínútur en hann er í hópnum og gæti spilað," segir Xabi Alonso, stjóri Chelsea. „Hann æfði í gær, kom beint á hótelið frá flugvellinum. Það voru miklar tilfinningar fyrir hann að sameinast liðsfélögum sínum að nýju."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.