Fotbolti.net
04.09.16 - 19:05
Arnar Daði Arnarsson

Helena Ólafsdóttir tekur við ÍA (Staðfest)

Helena Ólafsdóttir hefur tekið við liði ÍA.

Helena Ólafsdóttir hefur tekið við liði ÍA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Kvennaboltinn
Helena Ólafsdóttir hefur verið ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna fyrir næsta tímabil hjá Knattspyrnufélagi ÍA.

Helena mun því taka við liðinu af þeim Kristni Guðbrandssyni og Steindóru Steinsdóttur sem eins og áður hefur verið greint frá munu klára tímabilið með liðið í Pepsi deild.
Kristinn og Steindóra verða áfram vera í baklandi meistaraflokks kvenna auk þess að sinna fleiri verkefnum hjá félaginu.

Helena Ólafsdóttir hefur víðtæka reynslu af kvennaknattspyrnu. Hún starfaði síðast sem þjálfari hjá FK Fortuna í Álasund í Noregi. Þar áður þjálfaði hún meistaraflokk hjá FH, Selfoss, KR og Val. Helena þjálfaði einnig A-landslið kvenna 2003-2004.

Einnig hefur verið gengið frá ráðningu aðstoðarþjálfara liðsins en Aníta Lísa Svansdóttir verður Helenu til aðstoðar við þjálfun liðsins. Aníta Lísa er fyrrverandi leikmaður ÍA liðsins en hún hefur einnig spilað með FH, Val og Selfossi.

Þá hefur Aníta Lísa starfað sem þjálfari hjá Val, Stjörnunni og nú síðast hjá FK Fortuna/Aksla í Noregi. Hún mun jafnframt þjálfa 2.fl.kvenna.

„Með ráðningum Helenu og Anítu er það undirstrikað að knattspyrnufélag ÍA ætlar sér áfram að vera í fararbroddi á Íslandi í knattspyrnuþjálfun og fræðslu leikmanna hvort sem er í karla- eða kvennaflokkum. Markmið félagsins er að byggja upp öflugt knattspyrnufólk og að vinna titla auk þess að vera mikilvægur hlekkur í uppeldis- og æskulýðsstarfi á Akranesi,\" segir í tilkynningu frá ÍA.
Aníta Lísa verður Helenu til aðstoðar.

Aníta Lísa verður Helenu til aðstoðar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.