Fotbolti.net
04.10.26 - 20:51
Ívan Guðjón Baldursson

Þjóðadeildin: Portúgal með fullt hús - Höjlund og Zirkzee gerðu sigurmörk

Þjóðadeildin: Portúgal með fullt hús - Höjlund og Zirkzee gerðu sigurmörk
Canon

Mynd: EPA

Fjórum leikjum var að ljúka í A-deild Þjóðadeildarinnar rétt í þessu þar sem Cristiano Ronaldo-lausir Portúgalir höfðu betur gegn Noregi í annað sinn á sjö dögum.
Miðvörðurinn Kristoffer Ajer náði forystunni fyrir Norðmenn með stórbrotnu marki eftir aukaspyrnu. Boltinn barst skoppandi til Ajer rétt utan vítateigs og lét hann vaða frá vítateigslínunni. Skotið reyndist óverjandi fyrir Diogo Costa og náði Ajer forystunni með afar sjaldgæfu marki utan vítateigs.

Tveimur mínútum síðar svaraði bakvörðurinn Joao Cancelo með enn flottara marki á hinum endanum. Hann fékk boltann skoppandi til sín eftir innkast þar sem leikmenn Norðmanna voru alltof lengi að bregðast við. Cancelo gat ekki hitt boltann betur og þrumaði honum í netið, þar sem Egil Selvik kom engum vörnum við.

Selvik átti góðan leik og hélt Norðmönnum á lífi gegn ógnarsterkum Portúgölum sem sýndu mikla yfirburði. Erling Haaland fór svo haltrandi af velli í síðari hálfleik og gerði Goncalo Ramos það sem reyndist sigurmark leiksins af stuttu færi eftir frábæran undirbúning frá liðsfélögunum.

Francisco Conceicao lét reka sig af velli þegar hann fékk tvö gul spjöld á skömmum tíma fyrir mótmæli og vanvirðingu gagnvart dómaranum, svo liðsfélagar hans þurftu að klára viðureignina leikmanni færri. Norðmenn leituðu að jöfnunarmarki en tókst ekki að skapa mikla hættu, svo lokatölur urðu 2-1.

Portúgal er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir og aðeins einu stigi frá því að tryggja sér toppsæti riðilsins. Norðmenn eiga þrjú stig.

Danir höfðu á sama tíma betur gegn Wales þökk sé sigurmarki frá Rasmus Höjlund sem skoraði úr vítaspyrnu á 75. mínútu.

Danir voru talsvert sterkari aðilinn en áttu erfitt með að finna leið framhjá Danny Ward sem átti góðan leik á milli stanganna. Færanýting Dana var ekki nægilega góð en markið hans Höjlund dugði til.

Danir eru í öðru sæti riðilsins með 6 stig á meðan Wales deilir botnsætinu með Noregi þar sem báðar þjóðir eiga 3 stig.

Í hinum riðlinum gerði Þýskaland markalaust jafntefli í jöfnum leik í Grikklandi. Bæði lið fengu hættuleg færi til að skora en boltinn rataði ekki í netið.

Holland lagði þá Serbíu að velli í afar opnum og fjörugum leik í Hollandi. Teun Koopmeiners og Mihajlo Cvetkovic skoruðu í fyrri hálfleik og hélst staðan jöfn 1-1 þar til Joshua Zirkzee kom inn af bekknum til að ráða úrslitum.

Zirkzee fékk að spila seinni hálfleikinn og gerði sigurmarkið á 72. mínútu eftir góða stoðsendingu frá Ruben van Bommel. Zirkzee var réttur maður á réttum stað til að pota boltanum í netið af innan við meters færi.

Holland og Grikkland deila toppsæti riðilsins með 8 stig eftir 4 umferðir. Þjóðverjar eiga 5 stig undir stjórn Jürgen Klopp og sitja Serbar eftir í botnsætinu án stiga.

Að lokum gerðu Írland og Ísrael jafntefli fyrir luktum dyrum í Serbíu er þau mættust í B-deildinni. Lokatölur urðu 1-1 í afar opnum og skemmtilegum slag þar sem var mikill hiti í mönnum en engin rauð spjöld fóru á loft.

Lærlingar Heimis Hallgrímssonar í liði Írlands eiga fimm stig eftir fjórar umferðir.

Portúgal 2 - 1 Noregur
0-1 Kristoffer Ajer ('36 )
1-1 Joao Cancelo ('38 )
2-1 Goncalo Ramos ('79 )
Rautt spjald: Francisco Conceicao, Portúgal ('86)

Wales 0 - 1 Danmörk
0-1 Rasmus Hojlund ('75 , víti)

Grikkland 0 - 0 Þýskaland

Holland 2 - 1 Serbía
1-0 Teun Koopmeiners ('31 )
1-1 Mihajlo Cvetkovic ('35 )
2-1 Joshua Zirkzee ('72 )

Írland 1 - 1 Ísrael
1-0 Troy Parrott ('39, víti)
1-1 Dor Peretz ('47)
Þjóðadeildin: Portúgal með fullt hús - Höjlund og Zirkzee gerðu sigurmörk
Canon

Mynd: EPA

Þjóðadeildin: Portúgal með fullt hús - Höjlund og Zirkzee gerðu sigurmörk
Canon

Mynd: EPA

Þjóðadeildin: Portúgal með fullt hús - Höjlund og Zirkzee gerðu sigurmörk
Canon

Mynd: EPA

Þjóðadeildin: Portúgal með fullt hús - Höjlund og Zirkzee gerðu sigurmörk
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.