Fotbolti.net
04.11.16 - 19:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bryndís Lára í markið hjá Þór/KA (Staðfest)

Hall­dór Jón Sig­urðsson þjálf­ari Þórs/​KA, Bryndís Lára Hrafn­kels­dótt­ir og Nói Björns­son formaður knattspyrnudeildar kvenna hjá Þór/​KA við und­ir­skrift­ina í dag.

Hall­dór Jón Sig­urðsson þjálf­ari Þórs/​KA, Bryndís Lára Hrafn­kels­dótt­ir og Nói Björns­son formaður knattspyrnudeildar kvenna hjá Þór/​KA við und­ir­skrift­ina í dag.

Canon

Mynd: ​thor­sport.is

Kvennaboltinn
Bryn­dís Lára Hrafn­kels­dótt­ir, sem hef­ur varið mark kvennaliðs ÍBV í Pepsi-deild kvenna und­an­far­in ár, skrifaði í dag und­ir tveggja ára samn­ing við Þór/​KA. Þetta kem­ur fram á http://thorsport.is/.

Hún kem­ur til með að leysa Ceciliu Santiago, landsliðsmarkvörð Mexí­kó, af, en sú varði mark Ak­ur­eyr­arliðsins á nýliðnu tímabili.
Bryndís er 25 ára gömul, en síðustu fimm tímabil hefur hún varið mark ÍBV. Hún á 119 leiki að baki í meistaraflokki og þá hefur hún einnig leikið með æði U23 ára og U19 ára landsliðum Íslands.

„Bryndís Lára er gríðarlega góður markmaður og hefur verið i fremstu röð i mörg ár og það er frábært fyrir okkur að fá hana til liðs við okkur. Hún mun án efa styrkja okkar góða hóp mjög mikið,\" sagði Halldór Jón Sigurðsson, betur þekktur sem Donni, þjálfari Þórs/KA, í spjalli við thorsport.is.

„Hjá Þór/KA eru frábærir ungir markmenn og Bryndís mun klárlega gefa þeim mikið með reynslu sinni. Ég vænti mjög mikils af henni á næstu tímabilum bæði á vellinum og fyrir utan hann,\" sagði Donni ennfremur.

Heimild: thorsport.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.