Fotbolti.net
04.12.12 - 17:07
Elvar Geir Magnússon

Wallace verður leikmaður Chelsea í janúar (Staðfest)

Wallace verður leikmaður Chelsea í janúar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur staðfest að félagið hafi náð samkomulagi við Fluminense í Brasilíu um kaup á bakverðinum Wallace sem verður leikmaður Chelsea í janúar.

Wallace er sókndjarfur leikmaður sem er 18 ára gamall. Hann verður svo lánaður strax til baka og leikur með Fluminese út tímabilið.
Stór félög í Evrópu hafa fylgst með Wallace í nokkurn tíma en hann á 13 leiki að baki fyrir U17 landslið Brasilíu.

Hann hefur vakið athygli með aðalliði Fluminese og varð deildarmeistari í Brasilíu með liðinu.

Munnlegt samkomulag náðist við Wallace í stjórnartíð Roberto Di Matteo hjá Chelsea og þessi kaup eru því ekkert tengd Rafa Benítez.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.