Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 04. desember 2017 14:30
Magnús Már Einarsson
Jökull Blængs í Hauka á láni (Staðfest)
Haukur Ásberg semur
Jökull Blængsson.
Jökull Blængsson.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Haukar hafa fengið markvörðinn Jökul Blængsson á láni frá Fjölni en þetta staðfesti Kristján Ómar Björnsson þjálfari Hauka við Fótbolta.net í dag.

Hinn tvítugi Jökull spilaði tvo leiki í Pepsi-deildinni með Fjölni í sumar og tvo leiki í Borgunarbikarnum.

Hjá Haukum á hann að fylla skarð Trausta Sigurbjörnssonar sem yfirgaf félagið eftir tímabilið í haust.

Kantmaðurinn Haukur Ásberg Hilmarsson hefur einnig gengið frá samningi við Hauka.

Haukur Ásberg hefur verið á láni hjá Haukum frá Val undanfarin tvö tímabil en hann er nú búinn að semja við Hauka.

Haukur skoraði tvö mörk í 22 leikjum með Haukum í Inkasso-deildinni á þessu ári en liðið endaði þar í 7. sæti.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner