04.12.18 - 11:30
Magnús Már Einarsson
Baldvin Sturlu tekinn við Álftanesi (Staðfest)
Arnar Már aðstoðarþjálfari

Baldvin Sturluson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Baldvin Sturluson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baldvin Sturluson hefur verið ráðinn þjálfari hjá Álftanesi sem spilar í 3. deildinni á næsta ári. Baldvin mun einnig spila með liðinu.
Baldvin tekur við af Marel Baldvinssyni sem þjálfaði Álftanes á síðasta tímabili.

Álftanes endaði í 4. sæti í 4. deildinni síðastliðið sumar en komst upp í 3. deild eftir sameiningu Hattar og Hugins á dögunum.
Baldvin er 29 ára gamall en hann á 103 leiki að baki í Pepsi-deildinni með Stjörnunni, Val, Breiðabliki og Þrótti. Síðastliðið sumar var Baldvin fyrri hluta tímabils hjá Haukum áður en hann fór í KFG.
Arnar Már Björgvinsson verður aðstoðarþjálfari Álftnesinga á komandi tímabili en hann mun líkt og Baldvin líka spila með liðinu.
Hinn 28 ára gamli Arnar Már er uppalinn á Álftanesi en hann kom til félagsins frá Fylki í júlí síðastliðnum. Arnar Már hefur skorað 27 mörk í 127 leikjum í Pepsi-deildinni með Stjörnunni, Breiðabliki, Fylki og Víkingi Ólafsvík.

Arnar Már Björgvinsson

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski