Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 04. desember 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Guardiola: Væri brjálæði að hugsa um titilinn
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir að liðið eigi ekki möguleika á að verja titilinn í ensku úrvalsdeildinni.

City vann Burnley 4-1 á útivelli í gær og er átta stigum á eftir toppliði Liverpool sem á leik inni gegn Everton í kvöld.

Guardiola segir að City geti gleymt því að ná Liverpool.

„Það væri brjálæði að hugsa um titilinn miðað við bilið sem er í Liverpool," sagði Guardiola eftir leikinn í gær.

„Eins og allir segja þá erum við úr leik, við eigum enga möguleika."
Athugasemdir
banner
banner
banner