Jólamót Frídeildarinnar hefst um helgina. Til mikils er að vinna í mótinu sem verður spilað frá leikviku 11-14. Verðlaunakarfan mun m.a. innihalda verðlaun frá MiniGarðinum, Uva og Ölgerðinni. Endanleg verðlaun og fjöldi vinningssæta verður betur kynnt í næstu viku. Mótinu lýkur þann 21. desember og verður í kjölfarið blásið til Áramótamóts.
Athygli lesenda er vakin á því það verður lokað fyrir skráningar í Jólamótið eftir að leikvika 12 hefst. Allir sem eru skráðir til leiks á Frídeildinni eða skrá sig fyrir áðurnefnt tímamark taka sjálfkrafa þátt mótinu.
SKRÁ SIG HÉR.
Athugasemdir