Fotbolti.net
08.09.26 - 22:28
Ívan Guðjón Baldursson

Maresca og Fernandez kátir: Haaland er skepna

Maresca og Fernandez kátir: Haaland er skepna
Canon

Mynd: EPA

Nafnarnir Enzo Maresca og Enzo Fernández svöruðu spurningum eftir tveggja marka sigur Manchester City á útivelli gegn Porto í fyrstu umferð í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Fernández starfaði undir stjórn Maresca hjá Chelsea áður en Ítalinn var rekinn á síðustu leiktíð. Maresca var svo ráðinn til Man City í sumar og Fernández keyptur til félagsins fyrir metfé undir lok félagaskiptagluggans.

„Við hefðum getað skorað fleiri mörk og áttum skilið að vinna þennan leik. Þeir sköpuðu ekki mikið útaf því að við spiluðum góðan varnarleik og ég er ánægður með frammistöðuna. Ég er mjög heppinn því ég tók við fótboltaliði sem er yfirfullt af frábærum leikmönnum," sagði Maresca, sem var spurður út í táninginn Ayyoub Bouaddi. Sá er 18 ára gamall og spilaði frábærlega á miðjunni.

„Ayyoub Bouaddi var frábær. Frammistaðan hans var ótrúleg í þessum leik, hann leit út fyrir að vera með mikla reynslu á bakinu. Hann var svo yfirvegaður og öruggur í sínum aðgerðum."

Enzo byrjaði við hliðina á Bouaddi á miðjunni og lagði fyrra mark leiksins upp fyrir Erling Haaland. Hann talaði um Haaland og Maresca að leikslokum.

„Ég er svo ánægður í Manchester, liðsfélagarnir tóku svo vel á móti mér um leið og ég gekk inn um dyrnar. Þeir eru ekki bara frábærir leikmenn heldur líka stórkostlegar manneskjur. Þeir hafa verið svo vingjarnlegir við mig og stuðningsmennirnir hafa líka verið gjörsamlega frábærir. Ég er ótrúlega spenntur fyrir þessum nýjum kafla ferilsins," sagði Enzo.

„Erling Haaland er dýr. Hann er skepna innan vallar og algjör öðlingur utan vallar. Hann hefur hjálpað mér að aðlagast hérna. Ég er líka svo ánægður með að spila undir stjórn Enzo Maresca, sem gerði allt í sínu valdi til þess að fá mig hingað. Ég er svo þakklátur fyrir allt og hlakka til að leggja mig 100% fram á hverri einustu æfingu og í hverjum einasta leik til þess að endurgjalda traustið."

Haaland um Bouaddi: Búnir að finna alvöru demant
TENGT EFNI

Haaland um Bouaddi: Búnir að finna alvöru demant

Maresca og Fernandez kátir: Haaland er skepna
Canon

Mynd: Man City

Maresca og Fernandez kátir: Haaland er skepna
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.