08.09.26 - 23:13
Ívan Guðjón Baldursson
Hákon og Fornals hlupu mest - Óheppinn að leggja ekki upp

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: EPA
Þegar hlaupatölurnar eru skoðaðar eftir skemmtilegan leik Lille gegn Real Betis í fyrstu umferð deildarkeppni Meistaradeildarinnar sést að Hákon Arnar Haraldsson og Pablo Fornals hlupu langmest.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Haaland afgreiddi Porto - Mikið fjör í Madríd
Þeir hlupu 12,74km í leiknum en næstir á eftir þeim komu Tiago Santos með 11,44km og Héctor Bellerín með 10,72km.
Hákon átti flottan leik en tókst hvorki að skora né leggja upp í 2-3 tapi. Lille leiddi 2-1 í leikhlé en gestirnir frá Spáni snéru stöðunni við í upphafi síðari hálfleiks áður en pirraður Ethan Mbappé fékk beint rautt spjald fyrir að gefa andstæðingi sínum olnbogaskot fjarri boltanum.
Hákon komst ekki mikið í boltann en hann átti 36 heppnaðar sendingar af 39, eða 92% sendingahlutfall. Auk þess skapaði hann eitt mjög gott færi, sem fór þó forgörðum.
Hákon átti eina lykilsendingu sem skapaði færið en Pablo Fornals átti fjórar lykilsendingar og gaf eina stoðsendingu. Færið sem Hákon bjó til var þó betra heldur en öll fjögur færin sem Fornals skapaði lögð saman, samkvæmt xA (expected assists) tölfræðinni.