banner
   fös 04. desember 2020 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Spánn um helgina - Real Madrid heimsækir Sevilla
Real Madrid mætir Sevilla
Real Madrid mætir Sevilla
Mynd: Getty Images
Tólfta umferð spænsku deildarinnar fer fram þessa helgina og er nóg af frábærum leikjum á dagskrá.

Athetlic Bilbao mætir Celta Vigo í kvöld áður en fjórir leikir fara fram á morgun.

Sevilla spilar við Real Madrid. Starf Zinedine Zidane er sagt hanga á bláþræði og því þarf hann á sigri að halda gegn sterku liði Sevilla.

Luis Suarez er búinn að jafna sig af kórónaveirunni og getur spilað með Atlético Madríd gegn Real Valladolid og þá verður fróðlegt að sjá hvernig Börsungar eiga eftir að stilla upp gegn Cadiz í lokaleik laugardagsins.

Hægt er að sjá alla leiki helgarinnar hér fyrir neðan.

Leikir helgarinnar:

Föstudagur:
20:00 Athletic - Celta

Laugardagur:
13:00 Levante - Getafe
15:15 Sevilla - Real Madrid
17:30 Atletico Madrid - Valladolid
20:00 Cadiz - Barcelona

Sunnudagur:
13:00 Granada CF - Huesca
15:15 Osasuna - Betis
17:30 Villarreal - Elche
20:00 Alaves - Real Sociedad
Athugasemdir
banner
banner
banner