Fotbolti.net
05.01.13 - 14:48
Ívan Guðjón Baldursson

Djourou til Hannover á láni (Staðfest)

Djourou til Hannover á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Johan Djourou, svissneskur landsliðsmaður, er farinn til Hannover 96 á láni út tímabilið frá Arsenal.

Djourou á 144 leiki að baki fyrir Arsenal en fyrsta leik sinn spilaði hann í október 2004 gegn Manchester City.

Djourou hefur aðeins spilað tvo leiki á tímabilinu, þegar hann var fyrirliði Arsenal í sigrum á Coventry og Reading í Capital One bikarnum.
,,Allir hjá Arsenal óska Johan góðs gengis í Þýskalandi,\" stendur í yfirlýsingu Arsenal á vefsíðu félagsins.

,,Djourou er reyndur leikmaður sem hefur spilað erlendis og við erum vissir um að hann muni hjálpa okkur mikið,\" sagði Jorg Schmadtke, yfirmaður knattspyrnumála hjá Hannover.

,,Eftir að hafa misst Felipe og Leon Andreason til meiðsla þurftum við að finna varnarmann,\" sagði Mirko Stomka, þjálfari Hannover.

,,Hann er mjög sterkur og taktískur og við munum græða mikið af því að hafa hann innanborðs.\"

Hannover er í 11. sæti þýsku efstu deildarinnar.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.