Fotbolti.net
05.01.13 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Guðjón Bjarni þjálfar Árborg (Staðfest)

Guðjón í miðið ásamt stjórnarmönnunum Grétari Magnússyni og Eiríki Búasyni.

Guðjón í miðið ásamt stjórnarmönnunum Grétari Magnússyni og Eiríki Búasyni.

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Guðjón Bjarni Hálfdánarson hefur verið ráðinn þjálfari Knattspyrnufélags Árborgar.

Guðjón Bjarni tekur við starfinu af Guðmundi Garðari Sigfússyni sem tók við KFR á dögunum.
Guðjón Bjarni var aðstoðarþjálfari Guðmundar síðastliðið sumar en hann hefur þjálfað yngri flokka hjá Selfossi, Hamri og Ægi.

Hann lék með Ægi, Breiðablik, Hamri og Selfoss áður en hann gekk í raðir Árborgar árið 2009.

Árborg komst ekki í úrslitakeppni 3. deildarinnar í fyrra og leikur því í nýju 4. deildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.