05.01.17 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Ágúst Hlynsson í Norwich (Staðfest)

Mynd: Total football

Mynd: Total football
Norwich hefur keypt Ágúst Eðvald Hlynsson í sínar raðir frá Breiðablki. Ágúst er búinn að skrifa undir hjá Norwich en umboðsskrifstofan Total football greindi frá þessu í dag.
Hinn 16 ára gamli Ágúst steig sín fyrstu skref með meistaraflokki Breiðabliks síðastliðið sumar. Ágúst varð meðal annars yngsti markaskorari í sögu Breiðabliks þegar hann skoraði í leik gegn Kríu í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins.
Ágúst skoraði einnig í bikarleik gegn ÍA en samtals spilaði hann fjóra leiki í Pepsi-deildinni og þrjá leiki í Borgunarbikarnum.
Að auki varð Ágúst fjórði yngsti leikmaður sögunnar til að spila í Evrópudeildinni þegar hann spilaði með Blikum gegn Jelgava frá Lettlandi.
Ágúst spilar framarlega á vellinum en hann hefur undanfarin tvö ár einnig leikið með U17 ára landsliði Íslands.
Samtals hefur Ágúst skorað þrjú mörk í fimmtán leikjum með U17 ára landsliðinu.

Huge congrats to Agust Hlynsson with signing a contract with Norwich. He comes from Breidablik. ⚽🇮🇸👊 #TeamTotalFootball pic.twitter.com/BmsOKK3KAG
— Total Football (@totalfl) January 5, 2017