Fotbolti.net
05.01.17 - 16:23
Magnús Már Einarsson

Björn Einars býður sig fram til formanns (Staðfest)

Björn Einars býður sig fram til formanns (Staðfest)
Canon

Mynd: Aðsend

Bjön Einarsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns á ársþingi KSÍ þann 11. febrúar.
Geir Þorsteinsson hefur tilkynnt að hann ætli að hætta sem formaður á ársþinginu. Guðni Bergsson hafði tilkynnt að hann myndi bjóða sig fram og nú hefur Björn bæst í hópinn.

Björn hefur mikla og víðtæka reynslu af stjórnarstörfum í íþrótta- og knattspyrnuhreyfingunni. Hann var formaður knattspyrnudeildar Víkings 2007-2013 og formaður aðalstjórnar Víkings frá 2013 auk þess sem hann hefur setið í stjórn Íslensks toppfótbolta (ÍTF).

Björn hefur auk þess 20 ára reynslu af að stýra fyrirtækjum bæði hér á landi sem og erlendis. Hann hefur verið framkvæmdastjóri TVG-Zimsen frá árinu 2006. Björn mun ekki þiggja laun sem formaður KSÍ verði hann kosinn.

„Ég hef fengið mikla hvatningu úr knattspyrnuhreyfingunni undanfarnar vikur til að bjóða mig fram til formanns KSÍ. Þetta er ákvörðun sem ég tek að mjög vel yfirlögðu ráði. Margt gott hefur áunnist innan sambandsins síðastliðinn áratug en engu að síður er skýr krafa um breytta og öflugri stjórnsýslu innan KSÍ sem mikilvægt er að hlusta á. Ég tel mig koma með mikla reynslu og þekkingu úr knattspyrnuhreyfingunni og atvinnulífinu til að vinna að þessum breytingum með jákvæðum hætti og samvinnu allra aðila,\" segir Björn í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í dag.

„Mjög mikilvægt er að styrkja ímynd KSÍ gagnvart samfélaginu, aðildarfélögunum og samstarfsaðilum, innlendum sem erlendum. Það er mikill mannauður og reynsla innan stjórnar og á skrifstofu KSÍ sem nýta þarf vel og vandlega. Efla þarf sjálfstæði skrifstofu KSÍ og styrkja hana enn betur til að takast á við daglegan rekstur. Ennfremur er mikilvægt í mínum huga að tryggja þarf skýrt jafnvægi milli stjórnar KSÍ og skrifstofu sambandsins. Það er mikil og góð vinna unnin í grasrótinni og á meðal aðildarfélaga KSÍ. Tryggja þarf öflugri brú á milli KSÍ og aðildarfélaganna sem hafa margar og ólíkar þarfir.\"

„Ég mun beita mér fyrir því að að efla umgjörð og vinnuramma landshlutafulltrúa sambandsins og styrkja þannig tengingu landsbyggðarinnar við KSÍ. Ég mun leggja mig allan fram og vinna af krafti og heilindum fyrir öll aðildarfélög KSÍ og íslenska knattspyrnu. Tækifærin eru sannarlega til staðar í þessum frábæra meðbyr sem íslensku landsliðin, bæði kvenna og karla, hafa búið til fyrir okkur,\"
segir Björn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.