05.01.17 - 14:30
Magnús Már Einarsson
Man Utd lánar Johnstone til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur fengið markvörðinn Sam Johnstone á láni frá Manchester United út tímabilið.
Hinn 23 ára gamli Johnstone hefur verið á eftir David De Gea og Sergio Romero í röðinni á Old Trafford.
„Ég er mjög ánægður með að hafa gengið í raðir Aston Villa. Þetta er risa félag,\" sagði Johnstone.

Johnstone hefur ekki ennþá spilað með aðalliði Manchester United en hann hefur leikið á láni með Scunthorpe, Walsall, Yeovil, Doncaster og Preston.
Pierluigi Gollini var aðalmarkvörður Aston Villa framan af tímabili en Mark Bunn tók stöðu hans í síðasta mánuði. Bunn hefur hins vegar haldið einungis einu sinni hreinu í sjö leikjum og Johnstone gæti nú fengið tækifæri á milli stanganna.