Fotbolti.net
05.01.17 - 13:28
Magnús Már Einarsson

Marco Silva ráðinn stjóri Hull (Staðfest)

Marco Silva ráðinn stjóri Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Marco Silva hefur verið ráðinn stjóri Hull City en hann skrifaði í dag undir samning út tímabilið.
Hann tekur við af Mike Phelan sem var rekinn í fyrradag. Hull er á botninum í ensku úrvalsdeildinni en ekkert hefur gengið hjá liðinu að undanförnu.

Hinn 39 ára gamli Silva var þjálfari Olympiakos á síðasta tímabili. Silva leiddi Olympiakos til sigurs í deildinni en hann hætti síðan af persónulegum ástæðum eftir tímabilið.

Silva er frá Portúgal en hann hefur áður verið kallaður hinn nýi Mourinho.

Fyrsti leikur Silva verður gegn Swansea í enska bikarnum um helgina en á þriðjudag mætir liðið síðan Manchester United í fyrri leiknum í undanúrslitum enska deildabikarsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.