05.01.19 - 10:44
Arnar Helgi Magnússon
AC Milan og Chelsea skipta á framherjum

Morata á leið burt.

Mynd: Getty Images

Ramsey er á milli tannanna á fólki.

Mynd: Getty Images

Morata á leið burt.

Mynd: Getty Images

Laugardagsslúðrið er mætt í hús, sjóðheitt úr prentun. Það er BBC sem tekur saman. Njótið!
Stutt er í það að Alvaro Morata gangi til liðs við AC Milan á láni og Gonzalo Higuain fari þá til Chelsea á láni. (Sun)
Kínverska félagið Beijing Sinobo Guoan hefur gert tilboð í belgíska miðjumanninn Moussa Dembele sem er á mála hjá Tottenham. (Sky Sports)
AC Milan skoðar það nú að selja Fílabeinsstrendinginn Franck Kessie en Londonarliðin Chelsea og Tottenham vilja bæði fá leikmanninn. (Calciomercato)
Unai Emery, þjálfari Arsenal leggur mikla áherslu á það að Aaron Ramsey klári tímabilið með Arsenal en fari ekki í janúar. Hann endar að öllum líkindum í Juventus. (London Evening Standard)
Fyrrum framkvæmdarstjóri Manchester United og Chelsea, Pete Kenyon hefur sett sig í samband við Mike Ashley eiganda Newcastle um möguleg kaup á félaginu. (Mail)
Liverpool ætlar ekki að leyfa Lallana að færa sig um set í janúar. (Sky Sports)
Manchester City er búið að missa af hinum nítján ára miðverði Toulouse, Jean-Clair Todibo en hann er búinn að gera samkomulag við Barcelona. (Independent)
Reece Oxford, varnarmaður West Ham hefur verið orðaður við Borussia Monchengladbach undanfarna daga en hann vill vera hjá West Ham út leiktíðina og vonast eftir að Arsenal bjóði í sig í sumar. (Mirror)
Adrien Rabiot mun ganga til liðs við Barcelona í sumar á frjálsri sölu. (Guardian)
Manuel Pellegrini, þjálfari West Ham hefur neitað að svara spurningum um Andy Carroll og Marko Arnautovic en þeir eru báðir orðaðir burt frá félaginu. (Sky Sports)
Munir El Haddadi, leikmaður Barcelona hefur hafnað nýjum samning frá félaginu og mun því yfirgefa spænska stórliðið frítt í sumar. (ESPN)
Torino undirbýr nú tilboð í Roberto Pereyra, leikmann Watford en liðið er sagt vilja fá Argentínumanninn næsta sumar. (Tuttosport)
Ross McCormack, framherji Aston Villa er á leið til Motherwell á nýjan leik. (Birmingham Mail)
Hinn ungi Josh Maja í liði Sunderland hefur hafnað nýjum samning frá liðinu en Tottenham, Manchester City og Southampton vilja öll leikmanninn í sínar raðir. (Talksport)