05.01.19 - 16:40
Arnar Helgi Magnússon
Bréf Geirs til allra aðildarfélaga KSÍ

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Geir Þorsteinsson tilkynnti í morgun framboð sitt til formanns KSÍ á næsta ársþingi félagsins sem að haldið verður þann 9. febrúar.
Eftir að Geir opinberaði framboð sitt sendi hann eftirfarandi bréf á aðildarfélög KSÍ:

Framboð til formanns KSÍ
„Kæru félagar, ég hef ákveðið að gefa kost á mér að nýju í embætti formanns Knattspyrnusambands Íslands."
„Fyrir tveimur árum sagði ég staðar numið eftir að hafa starfað sem formaður KSÍ í 10 ár, en í reynd eftir um 35 ára samfelld störf innan knattspyrnuhreyfingarinnar. Ungur ákvað ég að tileinka líf mitt framgangi íslenskrar knattspyrnu. Ástríðan og viljinn til að láta gott af mér leiða er enn til staðar."
„Síðastliðinum tveimur árum hef ég varið í að safna kröftum, ferðast um heiminn í störfum fyrir UEFA og FIFA, ræða við hina ýmsu forystumenn í knattspyrnu um þróun leiksins og hef því haft tækifæri til að greina íslenska knattspyrnu frá nýju sjónarhorni. Á þessum tíma hef ég fengið margar nýjar hugmyndir um hvernig megi stuðla að auknum framgangi íslenskrar knattspyrnu."
„Ljóst er að fjölmargar áskoranir blasa nú við í íslenskri knattspyrnu, bæði er varðar þróun leiksins med aðildarfélögum KSÍ og árangur í alþjóðlegri keppni. Þekking og góð stjórnun er undirstaða velgengni íslenskrar knattspyrnu og árangurs innan vallar. Ég er tilbúinn til að takast á við fyrrgreind verkefni af einurð, festu og gleði. "
„Íslensk knattspyrna verður aðeins í fremstu röð með öflugu starfi innan aðildarfélaga KSÍ. Markmið KSÍ á því að vera, að auka fagmennsku í aðildarfélögunum og efla þau fjárhagslega þannig að þau geti sinnt starfi sínu enn betur og mætt öllum sínum áskorunum. Gjá er að myndast á milli aðildarfélaganna og KSÍ. Aðildarfélögin standa í stað á meðan starfsemi KSÍ blæs út."
„Árangur fellst ekki í aukinni yfirbyggingu KSÍ heldur í uppbyggingu innan aðildarfélaganna sem er hornsteinn alls knattspyrnustarfs á Íslandi."
Nýtt skipulag íslenskar knattspyrnu
„Þróun og framfarir í íslenskri knattspyrnu kalla á nýtt skipulag knattspyrnustarfsins. Íslensk íþróttahreyfing byggir á skipulagi sem að mestu hefur verið óbreytt áratugum saman. Íþróttastarfsemi hefur breyst mikið með aukinni fagmennsku en skipulag íþróttahreyfingarinnar hefur lítið breyst. Knattspyrnan er langstærsta íþróttagreinin á Íslandi hvað varðar þáttöku, vinsældir og umfang reksturs. Nú er svo komið að skipulagi knattspyrnustarfsins þarf að breyta til að efla aðildarfélögin og auka tekjumöguleika þeirra. Þau eru grunnurinn að öllu knattspyrnustarfi."
„Góður árangur landsliða Íslands í knattspyrnu sl. áratug hefur lagt auknar kröfur á herðnar Knattspyrnusambands Íslands allt árið um kring. Það hefur leitt til þess að Íslandsmótið í knattspyrnu hefur ekki hlotið þann undirbúning og athygli sem skyldi. Félögin í efstu deildum hafa myndað með sér samstarfsvettvang, til að fjalla um sameiginleg málefni en einnig til hagsmunagæslu og það hefur skapað togstreitu innan knattspyrnuhreyfingarinnar sem leysa þarf. Mikilvægt er að allir hagsmunaaðilar íslenskrar knattspyrnu gangi í takt og nái einingu um leiðina áfram til árangurs fyrir alla. "
„Tímabært er að breyta skipulagi KSÍ og festa lögum sambandsins Deildina (deildasamtök) og starfsemi hennar, þannig að aðildarfélögin, Deildin og KSÍ vinni saman að uppbyggingu íslenskrar knattspyrnu. Þessi breyting mun ekki aðeins gagnast félögum í efstu deildunum heldur mun hún einnig hafa jákvæð áhrif á allar deildir og í heild í þróun allra knattspyrnufélaga líkt og leyfiskerfið gerði þegar það var tekið upp."
„Slíkt skipulag á sér langa sögu í Skandinavíu og er nú kominn tími til að stíga skrefið hér á landi. Þetta verður mesta kerfisbreyting íslenskrar knattspyrnu frá stofnun KSÍ, 1947. Breytingin er nauðsynleg til að íslensk félög geti aukið fagmennsku, styrkt rekstrargrundvöll sinn og haft með beinum hætti stjórn á mikilvægum hagsmunamálum sínum s.s. markaðs- og sjónvarpsrétti. Draumurinn um fyrsta íslenska félagsliðið í riðlakeppni Evrópumóts í knattspyrnu lifir góðu lífi - hann þarf að rætast."
Knattspyrna fyrir alla
„Grunnur KSÍ eru aðildarfélögin sem vinna hið raunverulega uppbyggingarstarf í knattspyrnu. Innan þeirra fer fram þróun leiksins, leikmanna, þjálfara, dómara, stjórnenda og sjálfboðaliða - í raun upphaf og þróun alls knattspyrnustarfs á Íslandi. Störf sjálfboðaliða skipta sköpum í rekstri knattspyrnufélaga ólíkt rekstri hefðbundinna fyrirtækja. KSÍ þarf að miðla bestu lausnum og aðferðum á hverjum tíma, en mikilvægast er að efla aðildarfélögin og styrkja þau fjárhagslega. KSÍ hefur sl. áratug gert þáttöku í Íslandsmóti auðveldari og um leið ódýrarari fyrir félögin á öllum stigum íslenskrar knattspyrnu."
„Má þarf nefna yfirtöku á kostnaði í meistaraflokki við dómgæslu og upptöku ferðaþáttökugjalds til að jafna kostnað við ferðalög vegna leikja. Mikilvægt er að halda þeirri vinnu áfram í áföngum, ferðaþáttökugjald þarf að þróa til að koma enn betur á móts við þau félög sem ferðast mest auk þess sem þarf að taka upp slíkt fyrirkomulag í Íslandsmótum 2. og 3. aldurflokks þar sem leikið er í landsdeildum. Knattspyrnustarf stendur höllum fæti á ýmsum landssvæðum og í heild má segja að varnarbarátta sé háð víða utan höfuðborgarsvæðisins, svosem á Vestfjörðum, á svæðum á Vestur-,Norður-, Austur- og Suðurlandi. Það er mikilvægt að KSÍ komi að grasrótarstarfi á þessum svæðum til þess að halda leiknum gangandi og hvetja sveitarfélög til að standa vörð um uppbyggingarstarf knattspyrnunnar."
Fræðsla og mannvirki
„Fræðslustarf í fremstu röð innan knattspyrnuheimsins er lykillinn að góðum árangri í uppbyggingu og þróun leiksins. KSÍ hefur veigamiklu hlutverki að gegna í fræðslu fyrir þjálfara, dómara, stjórnendur og alla aðra sem að starfinu koma. Miðstýring á uppeldis- og afreksstarfi aðildarfélaga aé ekki rétt á sér því að fjölbreyttni er af hinu góða. Með þekkingu og aðstöðu sem sífellt verður að bæta, getur íslensk knattspyrna sótt fram í alþjóðlegri keppni. Halda þarf áfram uppbyggingu mannvirkja með aðstoð mannvirkjasjóðs KSÍ, sveitarfélaga og ríkisvaldsins með hagfelldu regluverki um endurgreiðslu virðisaukaskatts."
Landsliðin
„Eftir allmörg frábær ár hjá A landsliðum Íslands í knattspyrnu olli 2018 á ýmsan hátt vonbrigðum þrátt fyrir þátttöku Íslands í úrslitakeppni HM í fyrsta sinn. Árangur næst með góðu skipulagi, þekkingu og áræðni og með leikmönnum og þjálförum sem að skara fram úr. Ef vel er haldið á málum á A landsliðs karla góða möguleika á þáttöku í úrslitakeppni EM 2020 og A landslið kvenna í úrslitakeppni EM 2021."
KSÍ í fremstu röð
„Það hefur verið leiðarljós í mínu starfi fyrir knattspyrnuhreyfinguna að veita aðildarfélögum KSÍ og félagsmönnum þeirra góða þjónustu og aðstoð á öllum sviðum og öllum stundum. Það tel ég vera kjarninn í starfi formanns KSÍ. Með það í huga er ég reiðubúinn að leiða Knattspyrnusamband Íslands á nýjan leik þannig að KSÍ verði í fremstu röð knattspyrnusambanda í heiminum."
Með kveðju, Geir Þorsteinsson.