05.01.19 - 15:30
Arnar Helgi Magnússon
„Solskjær ætti ekki að fá starfið eftir tímabilið"

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær hefur farið frábærlega af stað sem þjálfari Manchester United. Undir hans stjórn hefur liðið unnið alla sína fimm leiki.
Leikmenn Manchester United virðast njóta þessa að spila undir stjórn Norðmannsins en stuðningsmenn félagsins fagna því að sjá loksins sóknarbolta hjá liðinu.
Paul Parker, fyrrum leikmaður Manchester United sem lék yfir hundrað leiki með félaginu á árunum 1991-1996 segir að Solskjær ætti ekki að fá að halda áfram með liðið.
„Solskjær er frábær náungi. Hann er búinn að koma með gleði inn og allir í kringum félagið eru brosandi, hann er að ná því besta út úr leikmönnunum,“ segir Parker.
Parker starfar sem knattspyrnusérfræðingur í sjónvarpi á Englandi.
„Ef litið er til lengri tíma held ég að Solskjær sé ekki rétti maðurinn. Eins gott og þetta er búið að vera á tímabilinu þá verður félagið að horfa lengra."
„United þarf þjálfara sem að er með aðdráttarafl og fær stór nöfn til félagsins. Ég tel að Solskjær sé ekki enn kominn þangað og þess vegna ætti United að leita annað.“