Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 05. janúar 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Henderson: Ég reyndi mitt besta
Jordan Henderson spilaði í miðverði gegn Southampton
Jordan Henderson spilaði í miðverði gegn Southampton
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, var í óvenjulegu hlutverki í 1-0 tapi liðsins gegn Southampton í gær en hann leysti af í miðverðinum.

Henderson hefur verið afar dýrmætur fyrir Liverpool á miðsvæðinu en neyddist til að spila í miðverði í gær vegna fjarveru lykilmanna á því svæði.

Hann spilaði við hlið Fabinho og skilaði sínu hlutverki ágætlega en hann var þó afar óánægður með spilamennskuna.

„Það er ekki í okkur að byrja svona illa í leikjum. Enn og aftur tókst okkur ekki að skora. Við höfum verið að skapa færi en náum ekki að skora í síðustu leikjum," sagði Henderson.

„Við vissum að þeir myndu koma hratt á okkur en við vorum sofandi á verðinum. Við gáfum þeim eina eða tvær aukaspyrnur og þá er manni refsað í þessari deild."

„Það er erfitt að spila í annarri stöðu og ég reyndi bara að gera mitt besta,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner