05.02.17 - 11:40
Arnar Geir Halldórsson
Ömer Toprak til Borussia Dortmund (Staðfest)

Ömer Toprak í baráttunni á Laugardalsvelli

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ömer Toprak í baráttunni á Laugardalsvelli

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Borussia Dortmund hefur gengið frá kaupum á tyrkneska varnarmanninum Ömer Toprak frá Bayer Leverkusen. Hinn 27 ára gamli Toprak færir sig um set þegar félagaskiptaglugginn opnar næsta sumar.
Dortmund ákvað að nýta sér riftunarákvæði í samningi Toprak og mun hann gera samning við Dortmund til ársins 2021.
Toprak hefur leikið yfir 200 leiki í Þýskalandi, fyrst með Freiburg og svo Bayer Leverkusen auk þess sem hann á 25 landsleiki að baki fyrir Tyrki.
„Ömer Toprak er sterkur varnarmaður með mikla alþjóðlega reynslu og frábæra leiðtogahæfileika,\" segir Michael Zorc, yfirmaður íþróttamála Dortmund.

👍 Borussia Dortmund sign Ömer Toprak for next season https://t.co/UvdK5HmE90 pic.twitter.com/gX5VOaFcsy
— Borussia Dortmund (@BVB) February 5, 2017