Fotbolti.net
05.02.18 - 18:43
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Torino búið að kaupa Rincon (Staðfest)

Torino búið að kaupa Rincon (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Torino hefur fest kaup á miðjumanninum Tomas Rincon frá Juventus. Kaupverðið er 6 milljónir evra.

Rincon gerði mjög góða hluti hjá Genoa en stóðst svo ekki væntingar þegar hann var keyptur til Juve.
Hann var í kjölfarið lánaður til Torino þar sem hann hefur gert góða hluti og nú er félagið búið að ganga frá kaupunum.

Torino greiddi 3 milljónir fyrir lánið með kaupmöguleika og greiðir því í heildina 9 milljónir.

Rincon er 30 ára gamall og er fyrirliði Venesúela. Hann á 82 leiki að baki fyrir þjóð sína.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.