Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 05. febrúar 2023 16:20
Aksentije Milisic
„Gerðum allt sem við gátum til að fá Ziyech"
Mynd: Getty Images

Luis Campos, sérstakur fótboltaráðgjafi PSG, tjáði sig um Hakim Ziyech en allt stefndi í það að leikmaðurinn myndi enda í röðum PSG á lokadegi félagsskiptagluggans.


Ziyech var mættur á skrifstofur PSG og beið eftir því að allt yrði klappað og klárt en skiptin náðu hins vegar ekki í gegn.

Ótrúlegt klúður með pappírsmálin gerðu það að verkum að skiptin náðu ekki í gegn í tæka tíð og því fór Ziyech aftur til London.

„Við gerðum allt sem við gátum til að fá Ziyech til PSG, líka teymið í kringum hann," sagði Campos.

„Til að félagsskipti fari í gegn þurfa allir þrír aðilar að vinna vel."

„Þetta gekk vel hjá PSG og Ziyech en því miður gekk það ekki vel hjá Chelsea."

Ziyech var í byrjunarliðinu hjá Chelsea sem gerði markalaust jafntefli gegn Fulham á föstudagskvöldið.


Athugasemdir
banner
banner
banner