Fotbolti.net
05.04.26 - 14:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kjarninn

Byrjunarlið West Ham og Leeds: Síðasta lausa sætið

Dominic Calvert-Lewin er á meðal varamanna.

Dominic Calvert-Lewin er á meðal varamanna.

Canon

Mynd: EPA

Núna klukkan 15:30 hefst leikur West Ham og Leeds í átta-liða úrslitum enska bikarsins.

Manchester City, Chelsea og Southampton eru komin í undanúrslitin og það er eitt laust sæti eftir sem annað hvort þessara liða mun hreppa.

Byrjunarliðin fyrir leikinn eru klár og má sjá þau hér fyrir neðan.
West Ham gerir nokkrar breytingar frá tapi gegn Aston Villa í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Stærst er það líklega að Adama Traore kemur inn í liðið.

Hjá Leeds er Dominic Calvert-Lewin á meðal varamanna þar sem hann hefur verið að glíma við meiðsli.

Byrjunarlið West Ham: Areola, Walker-Peters, Kilman, Disasi, Diouf, Potts, Magassa, Fernandes, Bowen, Traore, Castellanos.

Byrjunarlið Leeds: Perri, Bogle, Rodon, Bijol, Struijk, Justin, Amapdu, Stach, Tanaka, Nmecha, Okafor.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.