Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   sun 05. apríl 2026 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cherki baðst afsökunar og Ekitike harðlega gagnrýndur
Mynd: Skjáskot
Það átti sér stað athyglisvert atvik í leik Manchester City og Liverpool í ensku bikarkeppninni í gær.

Rayan Cherki, leikmanni Man City, var skipt af velli á 71. mínútu og kom Tijjani Reijnders inn á í hans stað. Þegar Cherki settist á bekkinn var hann kominn með Liverpool treyju og ætlaði að klæða sig í hana.

Cherki var nefnilega búinn að skipta um treyju við landa sinn Hugo Ekitike en þeir eru vinir. Ekitike hafði farið af velli nokkrum mínútum áður.

Cherki ætlaði að klæða sig í treyjuna en starfsmenn City voru fljótir að stoppa hann. Cherki hætti við og baðst afsökunar.

Ekitike var jafnframt gagnrýndur á samfélagsmiðlum af stuðningsmönnum Liverpool fyrir að skipta um treyju við leikmann City áður en leikurinn kláraðist, sérstaklega þar sem leikurinn endaði 4-0 fyrir City.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af atvikinu og brot af gagnrýninni sem Ekitike fékk.







Slapp
banner