Fotbolti.net
05.04.26 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Espirito Santo: Mun taka meiri tíma að jafna sig

Espirito Santo: Mun taka meiri tíma að jafna sig
Canon

Mynd: EPA

West Ham féll úr leik í 8-liða úrslitum enska bikarsins í kvöld eftir ótrúlegan leik gegn Leeds.

Leeds náði tveggja marka forystu en West Ham jafnaði metin með tveimur mörkum í uppbótatíma. Leeds hafði síðan betur í vítaspyrnukeppni.
Enski bikarinn: Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir þvílíka dramatík
TENGT EFNI

Enski bikarinn: Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir þvílíka dramatík

„Það er sorglegt hvernig þetta endaði því við sköpuðum færi í seinni hálfleik og í framlengingu sem hefðu getað komið í veg fyrir að þetta færi í vítaspyrnukeppni. Við sáum hvað það þýddi fyrir stuðningsmennina að við reyndum að komast á Wembley en það gerðist ekki," sagði Nuno Espirito Santo, stjóri West Ham.

West Ham mætir Wolves í deildinni á föstudaginn í miklum fallbaráttuslag.

„Það mun taka meiri tíma að jafna sig. Við erum sorgmæddir og verðum það í kvöld og á morgun en við verðum að bregðast við. Við eigum mikilvæga leiki svo við verðum að halda áfram að berjast."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.