Hafrún Rakel Halldórsdóttir var í byrjunarliði Bröndby þegar liðið vann 1-0 sigur á Nordsjælland í dönsku deildinni í dag. Hin 16 ára gamla Rebekka Sif Brynjarsdóttir kom inn á sem varamaður hjá Nordsjælland.
Bröndby er í 2. sæti deildarinnar með 34 stig, sex stigum á eftir toppliði Koge. Nordsjælland er í 4. sæti með 28 stig.
Bröndby er í 2. sæti deildarinnar með 34 stig, sex stigum á eftir toppliði Koge. Nordsjælland er í 4. sæti með 28 stig.
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir var í byrjunarliði PEC Zwolle sem tapaði 3-0 gegn Utrecht í hollensku deildinni. Zwolle er í 5. sæti með 28 stig eftir 18 umferðir.
Hildur Antonsdóttir var í byrjunarliði Madrid CFF þegar liðið fékk granna sína í Real Madrid í heimsókn í spænsku deildinni. Real vann leikinn 2-0.
Madrid CFF er í 10. sæti með 31 stig eftir 25 umferðir.


