Fotbolti.net
05.04.26 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jói útherji

„Þið eruð að fara yfir strikið"

„Þið eruð að fara yfir strikið"
Canon

Mynd: EPA

Enrique Cerezo, forseti Atletico Madrid, er mjög ósáttur með umfjöllun fjölmiðla um Julian Alvarez, framherja liðsins.

Barcelona og Arsenal hafa verið orðuð við hann en Cerezo er ekki á þeim buxunum að selja hann.
„Þið eruð að fara aðeins yfir strikið með Alvarez. Hann er leikmaður Atletico Madrid og er með langan samning við félagið," sagði Cerezo.

Alvarez gekk til liðs við Atletico frá Man City árið 2024 og var í liði ársins í spænsku deildinni á sínu fyrsta ári. Hann hefur spilað 101 leik, skorað 46 mörk og lagt upp 17.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.