05.05.18 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hákon Ívar í Fjarðabyggð (Staðfest)

Hákon Ívar í leik með Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Fjarðabyggð hefur kantmanninn Hákon Ívar Ólafsson í sínar raðir frá Grindavík og mun hann spila með liðinu í 2. deild í sumar.
Þetta er afar góður liðsstyrkur fyrir Fjarðabyggð sem <a href=\"http://www.fotbolti.net/news/25-04-2018/b-spa-fyrirlida-og-thjalfara-i-2-deild-b-10-saeti\" target=\"_blank\">spáð er í fallbaráttuna í 2. deildinni í sumar</a>.

Hákon Ívar rann út á samningi hjá Grindavík eftir síðasta tímabil og fór svo að hann framlengdi ekki samning sinn. Hann ætlaði upphaflega að finna sér lið á höfuðborgarsvæðinu en eitthvað hefur breyst í þeim plönum hjá honum.
Hinn 23 ára gamli Hákon spilaði níu leiki með Grindavík í Pepsi-deildinni í fyrra.
Hákon er uppalinn hjá Grindavík en hann var í láni hjá Haukum seinni hlutann af tímabilinu 2016.
Keppni í 2. deild hefst í dag en fyrsti leikur Fjarðabyggðar er ekki fyrr en á morgun. Þá fer liðið í Akraneshöllina og mætir Kára. Hákon Ívar er löglegur í þann leik með sínu nýja liði.