Fotbolti.net
05.05.18 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kári Péturs í HK á láni (Staðfest)

Kári í leik með Stjörnunni.

Kári í leik með Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK hefur fengið aukinn liðsstyrk fyrir sumarið. Hinn 21 árs gamli Kári Pétursson er kominn á lánssamningi frá Stjörnunni.

Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, þekkir Kára vel eftir að hafa þjálfað hann hjá Stjörnunni. Brynjar Björn var aðstoðarþjálfari Garðabæjarfélagsins áður en hann tók við HK.

Kári er mjög fjölhæfur. Hann er upplagi vinstri bakvörður en í dag getur hann spilað sem sóknarmaður, á miðjunni eða á kanti.
Kári er uppalinn í Stjörnnunni en hann hefur ekki verið að spila mikið þar. Hann spilaði með tvo leiki bláu í Garðabænum í Pepsi-deildinni árið 2015. Annars hefur hann farið á láni í KA, Leikni R. og KFG. Í fyrra skoraði hann fimm mörk í sex leikjum með KFG í 3. deild.

Kári er löglegur með HK í fyrsta leik í Inkasso-deildinni í dag, gegn nýliðum Magna í Kórnum. Leikurinn hefst 16:00 og verður honum lýst í beinni textalýsingu hjá okkur.

Sjá einnig:
Spá þjálfara og fyrirliða í Inkasso-deildinni: 3. sæti

Heil umferð fer fram í Inkasso-deildinni í dag.

Leikir dagsins:
14:00 ÍR - Víkingur Ólafsvík (ÍR-völlur)
14:00 Fram - Selfoss (Framvöllur)
14:00 ÍA - Leiknir (Akraneshöllin)
14:00 Njarðvík - Þróttur (Njarðvíkurvöllur)
16:00 HK - Magni (Kórinn)
16:00 Haukar - Þór (Ásvellir)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.