05.05.18 - 08:07
Elvar Geir Magnússon
Opnar sig varðandi ítrekaðar barsmíðar fyrrum leikmanns ÍA

Mark Doninger í leik með ÍA á sínum tíma.

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Mynd af Doninger sem birtist á Twitter á sínum tíma.

Mynd: Twitter síða Zlatko Krikic

Guðrún Dögg Rúnarsdóttir, sigurvegari í keppninni Ungfrú Ísland árið 2009, er í helgarviðtali í Fréttablaðinu þar sem hún segir frá ítrekuðum barsmíðum og hótunum sem hún varð fyrir af hendi Mark Doninger, fyrrum leikmanns ÍA.
Doninger er enskur miðjumaður sem lék með ÍA 2011 og 2012 en á þeim tíma byrjaði hann í sambandi með Guðrúnu. Í viðtalinu segir Guðrún frá því að Doninger hafi eftir smá tíma farið að sýna á sér dökkar hliðar.
„Ég man eftir tilfinningunni þegar hann sló og kýldi mig í fyrsta sinn. Ég var í raun logandi hrædd alla daga. Hann hótaði að drepa sjálfan sig, mig og mömmu mína og ég trúði því,\" segir Guðrún meðal annars.
Með hjálp frá fjölskyldu og vinum tókst Guðrúnu að slíta sambandinu við Doninger en á balli á Akranesi láu leiðir þeirra saman aftur. Þar kýldi Doninger hana með krepptum hnefa.
„Ég náði að staulast út af staðnum, en hann elti mig út og tók mig niður í jörðina og hélt mér fastri. Hann reif í hárið á mér og hélt mér niðri sama hvað ég barðist um. Ég var öll marin í framan og þurfti að ganga á hækjum í fjóra daga á eftir þar sem ég tognaði illa. Um leið og ég kom heim hringdi mamma í lögregluna og ég fór í skýrslutöku daginn eftir. Í miðri skýrslutöku fékk ég algjört taugaáfall. Ég grét á móðursýkislegan hátt og náði svo ekki að koma upp orði. Ég missti málið í þrjá sólarhringa eftir þetta. Kom ekki upp orði, þrátt fyrir að vinir og fjölskylda væru að reyna að tala við mig,\" segir Guðrún við Fréttablaðið.
Þjálfari ÍA kom til bjargar
Hún segir frá því að Doninger hafi ekki látið sig í friði og verið með hótanir ef hún kæmi ekki og ræddi við hann.
„Í eitt skiptið var ég verulega hrædd og lét til leiðast. Hann var mjög almennilegur þegar ég kom og við náðum að ræða saman á rólegum nótum. En þegar hann sagðist vilja byrja með mér aftur og ég sagði það ekki inni í myndinni, sturlaðist hann gjörsamlega. Hann bjó með þremur öðrum leikmönnum úr liði ÍA og þegar hann heyrði að þeir væru að koma inn í íbúðina dró hann mig á hárinu inn í herbergið sitt. Ég reyndi að berjast á móti, en hann var einfaldlega sterkari. Hann henti mér upp í rúm og byrjaði að berja mig.\"
„Strákarnir heyrðu hrópin í mér, en voru of hræddir til að koma inn. Ég komst að því eftir á að þeir hringdu í þjálfara liðsins frammi á gangi. Á þeim fimm mínútum sem liðu þar til þjálfarinn kom á staðinn náði Mark næstum því að drepa mig. Hann festi hendurnar á mér og var kominn það langt í að kyrkja mig að ég var öll orðin blá í framan og háræðarnar á hálsinum slitnuðu niður að brjóstum. Ég man að það sem ég hugsaði var: „Ég trúi ekki að ég sé að fara að deyja á þennan hátt!“
Þáverandi þjálfari ÍA, Þórður Þórðarson, kom þegar þarna var komið sögu inn í herbergið og náði að koma Guðrúnu Dögg út. Hún lagði fram kæru á hendur Doninger í kjölfarið og flúði land á meðan hún beið eftir að dómurinn félli.
Doninger var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi en þetta var annar dómurinn sem hann fékk fyrir ofbeldisbrot hér á landi.
Gagnrýnir það hvernig ÍA tók á málinu
Í viðtalinu gagnrýnir Guðrún hvernig knattspyrnudeild ÍA stóð að málinu og segir að félagið hafi staðið með Doninger allan tímann, jafnvel þó að þjálfari liðsins hafi komið að honum að reyna að drepa hana.
„Ég skil enn þann dag í dag ekki hvernig þeim tókst að taka svona á þessu máli. Íþróttafélag sem borgar manni laun fyrir að vera íþróttamaður og fyrirmynd getur ekki látið eins og ekkert sé þegar vitað er að hann er að berja kærustuna sína í spað.\"
„Það var ekki fyrr en þremur árum síðar að ég loks fékk bréf frá félaginu, þar sem ég var beðin afsökunar á því hve illa var staðið að málinu. Það var mjög fallegt, en kom frá nýjum aðilum í stjórn ÍA og ekki fyrr en einn helsti styrktaraðili liðsins sagðist vera að íhuga að hætta stuðningi við liðið vegna málsins. Þeir sem voru við stjórnvölinn á meðan á ofbeldinu stóð hafa enn ekki beðist afsökunar,\" segir Guðrún en viðtalið má sjá í heild í Fréttablaðinu.

Heimild: Fréttablaðið